Viðburðir félagsins

Hér er að finna efni sem tengist viðburðum félagsins

Haustráðstefna 2022

Fimmtudaginn 27. október 2022  klukkan 13:00-16:00

Landbúnaðarháskóla Íslands, Geitaskarði – Keldnaholti

Undanfarin tvö ár hefur starfsemi félagsins að mestu verið bundin við vefkynningar og samskipti á samfélagsmiðlum, vegna þekktra samkomutakmarkana. Nú er ætlunin að kanna hvað fjarkönnunarfólk hefur aðhafst undanfarið; Margt hefur gerst í fræðunum, tækninni og umhverfinu á þessum tímum og fjarkönnun verið meira viðeigandi en nokkru sinni fyrr.

Kallað er eftir tillögum að erindum og veggspjöldum um verkefni tengd fjarkönnun í víðu samhengi.

Vinsamlega sendið titil erindis/veggspjalds og nafn höfundar/höfunda á netfangið fjarkonnunarfelag (hjá) gmail.com  til og með 10. október. Þar má einnig nefna viðkomandi fyrirtæki/stofnun/skóla og tilgreina hvort óskað er eftir veggspjaldakynningu eða erindi.

Gert er ráð fyrir 15 mínútna erindum (íslenska/enska/norðurlandamál) og spurningum þar á eftir. Veggspjaldakynningarnar verða óformlegar, en góður tími gefst til umræðu. Boðið verður upp á kaffiveitingar í hléi.

Ekkert ráðstefnugjald verður innheimt en þátttakendur þurfa að skrá sig fyrir 25. október með því að senda tölvupóst  á netfangið fjarkonnunarfelag (hjá) gmail.com  Reiknað er með að ráðstefnunni verði streymt en mælt er með því að þeir sem hyggjast kynna verkefni sín mæti á vettvang.

Í kjölfar ráðstefnunnar verður aðalfundur félagsins haldinn. Fundarboð og dagskrá verða send félagsmönnum í byrjun október.

Með kærri kveðju. Stjórnin.

Birt 27.9.2022

Veffundur um dróna

Haustráðstefna 2019: Litróf fjarkönnunar

Hér er tengill á upptöku af ráðstefnu félagsins sem fram 20. nóvember 2019:

https://livestream.com/accounts/1974613/events/8900987/videos/199122042/player?width=640&height=360&enableInfo=true&defaultDrawer=&autoPlay=true&mute=false